|
|
15.10.2006 21:08:34 / islamabad
Ég er komin
með nýtt og flott blogg: www.zoolander.bloggar.is Check it out!!
»
08.10.2006 00:56:26 / islamabad
HEY I´m back! Var mín saknað eða??
Fullt búið að vera í gangi hjá okkur litlu fjölskyldunni...
Litla stækkar og stækkar, og meira að segja ég, sem er með hana á
hverjum einasta degi sé þvílíkan mun á henni! Fjúff, ég þarf að
fara að safna fyrir fermingunni 
Annars er það af mér að frétta að ég fór aðeins á lífið síðustu
helgi.. Reyndar ekkert í bæinn eða neitt, bara í vinnupartý
Gámaþjónustunnar (þarsem Bimbó vinnur) og það var haldið í
keiluhöllinni. Matur og keila og svona fínerí. Sko, þarsem
áfengisþol mitt er ekki uppá marga fiska lengur, þá fann ég vel á
mér eftir fyrsta bjór. Bjór nr. 2 varð svo til þess að ég átti mjög
auðvelt að mingla við yfirmann Sveinbjörns. Bjór nr. 3 ... já hann
varð til að gera mig frekar ölvaða, og svo þegar kallinn gaf mér
Vodka Ice var mín orðin Veeel í glasi híhíhí!! En það var bara
mjög skemmtilegt... Það var líka greinilegt að bjórinn hafði fín
áhrif á keiluhæfni mína, en fyrri leikurinn endaði ég í 63 stigum,
en sá seinni varð mikið betri, 91 stig þar á ferð thank you very
much!! Ég var samt frekar þunn á sunnudaginn og ég var búin að
gleyma hvað það er eikkað óspennandi.. Er ekkert að sækjast mikið
eftir fylleríi núna, bara svona lítið sötur..
Núna fæ ég alltaf 95.000 á mánuði í fæðingarstyrk.. og ég get
sagt ykkur það að ég er ekki vön að fá svona upphæðir inná kortið
mitt, enda í skóla og svona... og þarsem að litla barnið mitt er
ekki mjög dýrt í rekstri í augnablikinu, þá ákvað ég að fá
kaupæði.. Eða ég ákvað það ekkert, það bara alltíeinu gerðist!! Og
viti menn, á tveimur dögum tókst mér að kaupa tvenna skó, þrenna
boli, kjól, buxur, úlpu og vesti og svo eina peysu! Og svo má ekki
gleyma snyrtidótinu.. Ég get ekki hætt! En það er samt
ekkert leiðinlegt sko.. Og Bimbó sagði mér bara að njóta þess, því
ég fæ þetta ekki alltaf. I´m very happy yes.
Nú er ég voða dugleg að fara út, og gera eikkað..Enda er það
bara nauðsynlegt. Og btw, ég er farin að elska bjór.. Nammi namm,
var búin að gleyma hvað hann er góður..sllurrp! 
En jæja, nú er ég loks búin að skrifa á bloggið mitt, Til
hamingju Lára Heirru já, barnanet síðan virkar ekki eins og
stendur vegna þess að við eigum eftir að borga fyrir hana.. Fengum
nebbla fyrsta mánuðinn frítt. Það verður vonandi ekki langt í að
þið getið séð "stóru" stelpuna okkar!
Elska ykkur öll my darlings..
»
14.09.2006 20:22:00 / islamabad
Nú er snúlla litla orðin mánaðargömul, sem mér finnst ótrúlegt!!
Og btw þá er síðan hennar hér til hliðar ef þið viljið sjá myndir
og fá fréttir af henni 
Það er allavega allt gott að frétta af mér og mínum.... Nóg að
gera næstu helgi, er að fara í saumaklúbb á morgun, voða voða
gaman. Sú stutta fær að fara með. Svo á laugardaginn er ammæli hjá
henni Kozy minni sem verður voða gaman. Ég fæ að fá mér smá bjór
Gleði í krukku!
Er maður ekki stoltur af Magna sínum? Ég verð að segja að ég er
nokkuð ánægð með að hann vann ekki, hann spilar þá bara með House
bandinu í staðinn, sem er miklu betri kostur held ég.
Ég hef ekki farið í klippingu og litun frá því á gamlárs á
síðasta ári!! Guð minn góður, enda er hárið á mér orðið svo sítt að
það nær niður á mitt bak! Kallinn minn ætlar að vera svo góður við
mig og senda mig í smá snyrtingu. Það má ekki gleyma að hugsa um
sig.
Jæja farin once again... See ya later elsku fólk
»
06.09.2006 03:43:40 / islamabad
Hellú
everybody...
Var að horfa á Magna áðan, hann stóð sig bara hreint ágætlega
eins og alltaf. Er búin að vera að kjósa eins og brjáluð manneskja
og vona að þið gerið það sama, meina væri ekki gaman ef hann keppti
til úrslita?? Þetta er orðið svakalegt dæmi hérna, Magnavökur og
allir að kjósa og læti.. Miðvikudagar hefðu átt að vera frídagar á
meðan á keppninni stæði, eða allavega á meðan Magni er inni! GO
MAGNI GO!! Þvílík þjóðernishyggja í gangi! Heheh..
Fyndið hvað Íslendingum finnst hann alltaf langbestur,
flottastur og með bestu röddina... Haldiði ekki að ef við værum
Ástralar, þá þætti okkur Toby fullkominn? (Reyndar verð ég að segja
að hann kemst ansi nálægt því hehe ) Neinei, AUÐVITAÐ er Magni
flottastur og bestur, hvernig læt ég!!
Fréttir af stuttu mega nú ekki gleymast. Hún stækkar alveg
heilan helling á hverjum degi.. Sést svaka munur á henni, og líka
hvað hún þroskast mikið og er farin að taka voða mikið eftir öllu,
sjónvarpinu og öðru fólki og solleis. Hún er náttla bara yndi!! Við
erum að búa til síðu á barnanet, hún er enn í vinnslu en þið megið
alveg endilega kíkja á hana: www.barnanet.is/stulkasveinbjornsdottir
Sveinbjörn var einmitt að setja nýjar myndir inn, svo þið getið séð
muninn á henni frá því hún fæddist og þangað til núna. En hún er
náttla orðin þriggja vikna þessi elska, fjúff mér finnst ekki svona
langt síðan ég barðist við "æðislegu" hríðirnar!
Jæja, haldiði ekki að mín sé bara að leika í mynd sem verður
einmitt í bíó um helgina! Hahah, já, myndin verður sýnd í þrjá daga
í Háskólabíó... Frekar fyndið dæmi. Ég heiti einmitt Lara í
myndinni, sko ekki Lára.. Þetta er nokkurskonar bardagamynd, hugsa
að hún lofi góðu krakkar mínir, en munið eitt, atriðin mín voru
tekin sumarið 2003 svo að margt vatn hefur runnið til sjávar síðan
þá.. Ég er ljóshærð og með bollukinnar í myndinni híhí! Í hvítum
bol og hvítum leðurjakka í rigningunni.. Hmm já, lofar góðu

Heyrðu svo er bara búið að bjóða mér á fyrsta djammið mitt!!
WooHoo!! Reyndar erum við nú ekki að tala um að ég sé að fara að
detta íða, en allavega svona 1-2 bjórar! Hún Kozy var svo
yndisleg að bjóða mér í ammælið sitt 16.sept! Geymi kallinn heima
hjá barninu múhahah! Ég á inni að fara út.. Finnst ykkur það
ekki?
Allavega kveð ég nú, ætla að leggja mig með börnunum mínum..
KNÚSS!! ***
»
30.08.2006 02:28:32 / islamabad
THE MOMENT YOU´VE ALL BEEN WAITING FOR:
ÞAÐ ERU KOMNAR MYNDIR AF SÆTU LITLU
TÁSU!!!! Check it out people! 
(Hér til vinstri í ***Nýtt nýtt***)
»
28.08.2006 20:58:14 / islamabad
Jæja! Eins og flestir eru nú búnir að sjá
er komin lítil gullfalleg prinsessa í heiminn til okkar

Hef ekkert verið að gefa mér tíma í þetta blogg eins og gefur að
skilja... Hún fæddist 13 merkur og 49 cm með 10 fingur og 10 tær..
Bara hreint fullkomin stelpuskotta Með dökkt og mikið hár.. En
það er reyndar aðeins farið að lýsast núna. Hún er orðin tveggja
vikna í dag.. Hún vaknar aldrei á nóttunni, hún sefur frá svona
tólf, eitt til kl. hálf níu alla morgna. Sem sagt algjör DRAUMUR!!
Við erum búin að vera að drösla henni í heimsóknir á kvöldin og
allt gengur eins og í sögu.
Hríðirnar voru samt alveg ekki skemmtilegar, ég var með þær í um
40 klst. Vorum tvisvar send heim því útvíkkunin gekk svo hægt, en
loksins þegar eikkað fór í gang þá fékk ég mænudeyfingu og það var
ÆÐI! Þá gat maður aðeins slappað af... Fyndið að ég dofnaði þvílíkt
í fótunum og gat ekki hreyft þá, hvað þá staðið upp. En svo fékk ég
að rembast og hún kom bara á 50 mínútum... Ahh 
Skrítnasta tilfinning í heimi er þegar búkurinn fer út úr mér..
Vá það var þvílíkur léttir. Eins og að losna við mikið loft
hehe...
Ég er búin að fá mér bjór og ég get sagt ykkur það að það var sá
besti bjór sem ég hef nokkru sinni bragðað! Hitaði í magann og læti
hehe... Ég naut hans sko í botn!!!
Nú fara sko að koma myndir af litlunni, ætla að gera það við
tækifæri þegar ég er heima.. Við erum hjá tengdó núna sko..
En ég læt þetta duga í bili, gaman að vera orðin létt aftur, eða
allavega léttari en þegar ég var ólétt.. Passa reyndar ekki í nema
tvennar buxur aftur... Úff það kallar á SHOPPING SPREE!!! Woohoo!
Sé ykkur seinna people! Hlakka til að hitta einhvert ykkar í
bjór eða smá pöbbarölti! ***KNÚS***
»
10.08.2006 14:42:08 / islamabad
Jæja gott fólk, erum enn að bíða.. Og ég get sagt ykkur að
biðin er orðin ansi löng... Meðgangan sem slík er bara frábær, og
ég finn ekkert fyrir því að ég sé ólétt fyrir utan náttla bumbuna!
Sem er bara gaman Er sett á næsta laugardag, og trúið mér,
ég ætla sko að reyna að gera allt til að koma fæðingunni af stað...
Kannski fá mér einn bjór eða rauðvínsglas, stunda villt og brjálað
..., fara út í göngutúr eða golf og helst í bíltúr á vegi sem er
ekki sléttur! Heheh það verður allt prófað!
Annars er voða lítið að frétta af manni, er bara mjög mikið
heima fyrir og allt er tilbúið fyrir krílið..
Ég get nú samt sagt ykkur að ég er að fíla Magna okkar í
Rockstar! OMG ekkert smá flott hjá honum! Manni finnst alltaf jafn
ótrúlegt þegar Íslendingur nær svona langt í einhverju... Miðað við
höfðatölu tel ég þetta bara alveg frábært! Og þeir allir alltaf
geggjað ánægðir með hann... Og guð hvað hann á sætan lítinn strák!
Ógó mikið krútt!
Mig langar í einn kaldan. Meira að segja svo mikið að mig
dreymir bjór á nóttinni og ég finn alveg lyktina af honum...
SLlllurrrp.. nammi namm Um helgina Lára, um helgina...
Jæja, nú fara alveg að koma fleiri myndir... Ég er með svo stóra
kúlu að þið trúið því ekki, svo ég verð að fara að skella myndum
inná síðuna. Hef bara verið í smá vandræðum útaf netinu.. En það
kemur
Ég er þá farin í bili... Knús knús allir saman, vonandi
kemur barn um helgina!!!
»
25.07.2006 22:26:25 / islamabad
Jæja hér er ég komin aftur... Bætti einhverjum myndum inná, en
var í einhverju internettengingaveseni... Svo ég set fleiri inn
bara seinna í vikunni.
Fórum í svakalega fallegt brúðkaup á lau. og ég óska Bjössa og
Evu innilega til hamingju með daginn sinn... Gaman hvað við
vinirnir vorum í fyrsta sæti í veislunni og í kirkjunni, við sátum
ss. næstfremst þar, og við hliðina á háborðinu í veislunni.
Greinilegt að þau meta vini sína mikið 
Mig langar að eiga barnið okkar næstu helgi.. Mamma og pabbi
koma heim á fimmtudag og bróðir minn fer út á mánudaginn, svo það
myndi passa mjög vel svo fjölskyldan mín væri nú öll heima þegar
þetta gerist... Úff það er spenna í gangi... Því miður fyrir
aumingja kallinn minn þá er ekkert kynlíf í gangi núna.. En hann er
svoo góður þessi elska að það er allt í lagi!
Jæja farin aftur í bili, bless bless honeys!!
»
22.07.2006 02:24:07 / islamabad
Busy busy days... Ég er búin að vera ótrúlega upptekin síðustu
daga, hef engan tíma til að sinna vinum mínum sem langar að sjá
kúluna í síðasta sinn! Þessi helgi til dæmis er algjörlega
pökkuð. Keyrði mömmu og pabba útá flugvöll í dag, keypti
ammælisgjöf, fór og hjálpaði að dekka upp fyrir brúðkaupið og svo
fór ég í ammæli. Á morgun er svo brúðkaup sem er allan daginn að
sjálfsögðu, og svo var eikkað á sunnudaginn sem ég nenni ekki að
muna núna. Ok ég er ólétt og á endasprettinum, á maður ekki að taka
því rólega svona síðasta spölinn? hehe annars er þetta ekkert
leiðinlegt, ekki misskilja mig.
Það er núna bara þvílíkur spenningur í gangi hjá okkur Bimbó og
fjölskyldunni eftir litla bumbubúa.... Verð samt að gjöra svo vel
að halda í mér í nokkra daga í viðbót því mamma og pabbi eru í
Köben... Mín versta martröð ætti sér stað ef ég færi af stað á
meðan þau væru úti.. Úff!!
Fór heim til Jóns Þóris og Gyðu í gær, og þau eiga litla snúllu
sem er uþb 8 mánaða, og GUÐ minn hún er svo falleg og mikil dúlla!!
Og nú ætla ég að monta mig, hún vildi ekki fara að sofa, hún
barðist við að halda sér vakandi og fékk svo hiksta en þegar
hún kom í mitt fang þá hvarf hikstinn og hún sofnaði! Ég
alveg fékk svaka móðurtilfinningu og þefaði af henni og knúsaði og
hún var svo mjúk og góð lykt af henni! AHH ég hlakka til..
Ég vildi bara segja ykkur eitt í viðbót: Ég er algjörlega
ótrúlega hamingjusöm og ánægð með lífið. Ég hef aldrei verið eins
ástfangin eins og nú og Sveinbjörn er algjörlega yndislegur engill
sem mig langar að giftast og lifa með að eilífu og öll líf eftir
það.
Fjúff talandi um smá væmni hehehe..... Æhj það er bara svo gott
að vera hamingjusamur Knús allir saman ----Lára----
Ps. er búin að tæma myndavél mömmu og pabba í tölvuna, svo nú
fara að koma fullt af fleiri myndum inn...Er bara of sybbin
núna..
»
17.07.2006 02:23:55 / islamabad
Jæja nú eru loks komnar nokkrar myndir
inn!!! 
Tók smá tíma... Þetta eru reyndar ekki allar myndirnar sem ég
ætla að hafa þarna en þetta verður að metta ykkur í bili! Þetta
er hér til vinstri undir myndir og heitir ***NÝTT NÝTT*** Gat
ekki sett inn sónarmyndirnar vegna óviðráðanlegra ástæðna...En
sjáið þið hvort eð er nokkuð út úr þeim myndum?? hhehee
»
10.07.2006 16:27:53 / islamabad
Hafiði heyrt
lagið Chacarron? Þetta er með einhverjum gaur sem kallar sig
Macarron, og VÁ! Þetta er mesta sýra sem til er .. Heheh samt
frekar fyndið, þetta lag er glatað en maður fær það svona
líka skemmtilega á heilann... Þið ættuð að geta séð það hérna
>
http://video.google.com/videoplay?docid=2120659111755287021&q=chacarron
Ég bjargaði víst
geðheilsu Finna á laugardaginn... Sem er eins gott, held ég vilji
að hann haldi henni aðeins lengur.. Gaman að geta komið til hjálpar
í neyð Ég er voða ánægð með það! Verði þér að góðu Finni minn,
veit að þú myndir gera það sama fyrir mig! Hann sagði mér að fólk
væri farið að vilja sjá mig aftur á djamminu í bænum.. Hmm kannski
maður kíki á eikkað smá rölt eftir svona nokkrar vikur?
Jæja, nú eru bara
um fjórar vikur eftir, ég er ekki að trúa því sjálf.. Úff stysta
meðganga sögunnar er að verða búin Mikið verður gaman að fá
litla kríli! Við mamma misstum okkur aðeins í Hagkaup um daginn og
keyptum ekkert lítið sæt föt! Úff bara gaman að horfa á þau aftur
og aftur, maður nærist svoldið á því...
Ætla að stofna
nýja síðu fyrir myndir, ætla að gera það núna bara.. Þá fáiði
að sjá bumbumyndir og sónarmyndir og eikkað gotterí!
Lára kveður að
sinni.
»
03.07.2006 14:14:49 / islamabad
Hæ allir
saman...
Núna um helgina
gæsuðum við Evu og var það vægast sagt æðislegur dagur! Fórum ma.
og hittum mömmu hennar í Hveragerði, fórum í dýragarðinn í Slakka
þar sem við áttum geggjaða stund, Eva fékk heilnudd í Nordica Spa
og við borðuðum á Ítalíu. Vá þetta er samt bara helmingurinn af því
sem við gerðum.. Leyfðum Evu líka að gefa fólki karamellur á
laugaveginum og það vakti geggjaða lukku! Ég ætlaði ekki að trúa
þessari orku sem ég hafði allan daginn...Fór á fætur kl. 7 um
morguninn og ég tórði til kl. 3... Fjúff ég náði næstum því
sólarhring...Enda var krílið orðið þreytt og við sváfum mestallan
sunnudaginn Þetta var svo skemmtilegur dagur, æðislegar stelpur
og bara allt var æðislegt! Þetta er sem sagt nýji saumaklúbburinn
minn.. Eða fyrsti þarsem ég hef aldrei verið í saumaklúbb.. Fyrir
utan eikkað þegar ég var 10 ára, þá var maður alltaf í einhverjum
stelpuklúbbum...En vá hvað þetta skiptir engu máli!!
Við Sveinbjörn
erum orðin pínu stressuð núna, því við erum ansi hrædd um að krílið
okkar ætli sér aðeins fyrr í heiminn en áætlað var...Við eigum núna
að eiga 7 vikur eftir, en barnið er fyrir löngu búið að skorða sig
og kúlan er farin að síga aðeins...Og trúið mér, það er nóg eftir
að gera áður en það fær að kíkja út! Við þurfum ekkert að kaupa,
nema kannski samfellur og bleiur...Talandi um fínt! Það er svo gott
að eiga góða að Já og ég er nokkuð viss að þetta sé stelpa, ekki
það að ég hafi hugmynd, en nú er ég algjörlega komin á þá
skoðun...
Þetta var nú allt sem ég
ætlaði að segja...Auf wiedersehn meine kinder!
»
25.06.2006 02:27:04 / islamabad
Hello people!
Veit ekkert hvað ég á að skrifa núna... Hmm hvað er nýtt í
fréttum?
Ég held áfram að stækka og stækka, og er farin að hafa smá
áhyggjur, þ.e. að ég verði orðin alveg HUGE stór þegar ég fer að
fæða. Ég á nebbla uþb 8 vikur eftir, og nú er tíminn þar sem barnið
stækkar sem mest. Cross your fingers folks, og vonum að ég springi
ekki!
Tengdó komu heim frá Benidorm í fyrradag, æji það var voða gaman
að fá þau bara aftur heim. Þau gáfu okkur alveg óendanlega krúttleg
föt, og meðal annars sokka á krúttið sem myndu sennilega passa á
barbídúkkuna mína! Þeir eru svooo litlir og sætir!
Jæja ég nenni ekki að skrifa meira í bili, reyni að standa mig
betur í fréttaflutningi og bumbumyndum 
»
18.06.2006 17:59:23 / islamabad
Jæja góðan dag, góðan dag! 
Haldiði ekki að ég sé bara komin í HM gírinn! Ég er núna búin að
horfa á tvo leiki með bestu lyst, og svo náttla horfði ég á
handboltann í gær. Aldrei hefði ég trúað þessu! Lára ANTI
íþróttastelpa!
Annars er bara fínt að frétta, barnið virðist aldrei sofa,
allavega er það alltaf á hreyfingu, og ég hef áhyggjur af því að
það fái ekki nægan svefn. Það er líka alltaf með hiksta, og ég
kippist alltaf með krúttinu þegar það hikstar Bara sætt, en
ég vorkenni litla búbba líka!
Þessi helgi hefur að mestu farið í sjónvarpsgláp og þvílíka
leti! Ég er búin að sofa mestalla helgina og hef ekki getað hreyft
mig né farið eikkað út. Ég er algjör drusla, og þarf að fara að
hitta Ariönu mína! Það er svona að vera ekki að gera neitt
dagsdaglega, þá verður maður svona hryllilega latur... úff it´s a
hard life!
Jæja, farin að gera eikkað að viti, eins og að hringja í elstu
vinkonu mína og fara á kaffihús?
»
14.06.2006 14:27:13 / islamabad
Hello everybody! Fyrirgefið hvað ég er eikkað lítið að skrifa
hér inná þessa dagana. Er ótrúlega löt við það, þó að ég sé bara
heima að skottast! Enda er það kannski ástæða letinnar, ég hef
ekkert að segja hehe....
Ég fór á Pravda á laugardaginn í ammæli, sem var ágætis
tilbreyting útaf fyrir sig. Var meira að segja lengi, alveg til 2
eða hálf þrjú! Eftir það sendi ég kallinn minn bara á djammið og
fór sjálf heim að lúra Hann þarf nú stundum að komast út sjálfur
er það ekki?
Annars er bara allt stórfínt að frétta af mér, er bara orðin
ótrúlega ólétt og fín. Og erum við að tala um spenning! Við
Sveinbjörn erum að deyja, okkur langar í barnið strax í gær! En það
er víst nóg enn eftir að undirbúa, úff ég hefði aldrei trúað því
hvað þetta þarfnast mikils undirbúnings, plús hvað þarf að kaupa
mikið af allskonar smádóti. En litli búbbinn þarf að vera sáttur...
Og ég tala í karlkyni af því að búbbi er karlkyns orð! 
Pabbi bauð okkur skötuhjúum á Fullkomið brúðkaup í gær (þeir sem
ekki vita er það leikrit í Borgarleikhúsinu) og það er geggjað
skemmtilegt! Hefði aldrei trúað því að þetta væri svona fyndið,
maður hló og hló allan tímann! Takk pabbi minn!!
Ætlum svo að kíkja á The Da Vinci Code í kvöld, ég loksins búin
að lesa bókina svo maður þarf að fara að drifa sig! En jæja lömbin,
þá held ég að nóg sé komið af skrifi í dag. Knús í bala
Ps. Ariana, kíktu í kommentin á síðustu færslu hjá þér, þar er
númerið mitt 
»
Síður: 1 2 3 ... 14
|
|